top of page

Gunnhildur Sveinsdóttir, sálfræðingur
Gunnhildur Sveinsdóttir, sálfræðingur, veitir hugræna atferlismeðferð við öllum helstu kvíðaröskunum, þunglyndi og lágu sjálfsmati hjá fullorðnum. Hún hefur sérstaklega mikinn áhuga á og reynslu af hugrænni úrvinnslumeðferð (CPT) við áfallastreituröskun.
Gunnhildur lærði sálfræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Amsterdam (UvA) og starfaði áður á Kvíðameðferðarstöðinni.
Gunnhildur starfar einnig sem sálfræðingur hjá Reykjavíkurborg í teymi sem sinnir málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Auk þess starfar hún fyrir Lækna án landamæra og hefur farið í verkefni á vegum samtakanna til Írak og Eþíópíu.
bottom of page