
Magnús Blöndahl Sighvatsson, sálfræðingur
Magnús sérhæfir sig í hugrænni atferlismeðferð (HAM) við áráttu-og þráhyggjuröskun, heilsukvíða, almennri kvíðaröskun, félagsfælni, felmturröskun og þunglyndi hjá fullorðnum. Hann hefur viðamikla reynslu í greiningu og meðferð geðraskana en á árunum 2006 – 2016 starfaði hann sem sálfræðingur á geðsviði Landspítala ýmist á göngudeild eða innlagnadeild.
Magnús stundar nú doktorsnám við Læknadeild Háskóla Íslands. Hann er einnig klínískur lektor við sálfræðideild Háskóla Íslands og sinnir stundakennslu bæði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Magnús handleiðir nemendur í lokaverkefnum á sviði klínískrar sálfræði bæði í grunnnámi og í framhaldsnámi. Auk þess hefur hann starfað sem ritrýnir fyrir erlend og íslensk fagtímarit.
Menntun:
Magnús lauk BA prófi í sálfræði árið 2001 og MA gráðu í sálfræði árið 2006 frá Háskóla Íslands. Hann er nú að ljúka doktorsnámi við sama skóla. Doktorsverkefni hans miðar að því að skilja virka þætti í hugrænni atferlismeðferð (HAM) þ.e. hvaða inngrip í HAM valda því að meðferðin er árangursrík. Magnús hefur birt vísindagreinar í erlendum tímaritum um rannsóknarefni sín auk greina á íslensku um HAM.
Sími: 581-1009
Tölvupóstur: magnus.blondahl@gmail.com