top of page
Þóra Sigfríður Einarsdóttir, sálfræðingur

Þóra Sigfríður sinnir einkum fólki sem hefur orðið fyrir áföllum, s.s. slysi, ofbeldi eða missi. Einnig vinnur hún með kvíðavanda, sjálfsmynd, handleiðslu einstaklinga og hópa. 

 

Embættispróf í sálarfræði

Þóra Sigfríður lauk embættisprófi í sálarfræði frá Árósarháskóla árið 2003, með áherslu á áfallasálfræði. Starfaði hún í Danmörku í fjögur ár og lauk þar tveggja ára framhaldsmenntun sem fólst í að minnsta kosti 160 handleiðslutímum ásamt vinnu.


Sérnám í hugrænni atferlismeðferð

Árið 2013 lauk hún sérnám í hugrænni atferlismeðferð sem er stýrt af Félagi um hugræna atferlismeðferð í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands og Oxford Cognitive Therapy Center. Námið er 64 einingar (samsvarar u.þ.b. 1600 vinnustundum) og snýr að meðferð margskonar vandkvæða svo sem kvíða (félagsfælni, almennur kvíði, ofsakvíði, árátta og þráhyggja, heilsukvíði, áfallastreita, sértæk fælni), lyndisraskana (þunglyndi, geðhvarfaskjúkdómar) og annarra vandamála (lágt sjálfstraust, samskiptavandi hjóna, svefnvandi) undir handleiðslu sérfræðinga.

 

Handleiðsla

Einnig hefur Þóra lokið námi í handleiðslu á vegum Dansk Institut for Supervision, Personaleudvikling, Undervisning og Konsultation.

Endurmenntun

Þóra leggur áherslu á reglulega endurmenntun og handleiðslu og sækir því reglulega 

námskeið og vinnustofur í sálrænni meðferð hér heim og erlendis.

Starfsferill

2017-                Domus Mentis - Geðheilsustöð

2014-2017       Áfalla og sálfræðimiðstöðin

2007-2014       Barnahús

2003-2007       PPR-Omraadekontoret, Viborg

 


Félagsstörf

2004-2006       Samarbejdsudvalget, PPR-Omraadekontoret.

 

2006-2007       Fulltrúi sálfræðinga í teymi sem sá um mannaráðningar.

2009-2014       Fulltrúi Barnahúss í samninganefnd

2008-                Setið í stjórn Sálfræðingafélags Íslands sem meðstjórnandi, sem varaformaður                                  frá 2013-2018.

2014-               Formaður fagráðs Háskóla Íslands gegn kynbundnu og kynferðislegu áreiti og                                     öðru kynferðislegu ofbeldi.

2016-               Kjara- og réttindanefnd BHM

2016                Varamaður í stjórn BHM

bottom of page