top of page

Niður­greidd sál­fræðiþjónusta án sál­fræðinga, hvernig hljómar það?

Kristbjörg Þórisdóttir og Edda Sigfúsdóttir, sálfræðingar á







Greinin birtist fyrst á VÍSI þann 20. nóvember 2024 08:30

Þann 18. nóvember s.l. skrifaði María Mjöll Björnsdóttir starfandi sálfræðingur á Landspítala grein þar sem hún benti á bág kjör sem sálfræðingum Landspítala bjóðast. Við undirritaðar tökum undir skrif hennar og hvetjum stjórnvöld til að bæta úr þessu.



Sálfræðingar til framtíðar innan stofnana geðheilbrigðiskerfisins

Við þekkjum það báðar að hafa starfað víðsvegar sem sálfræðingar. Við höfum meðal annars starfað í fyrstu línu á heilsugæslum, í annarri línu á stofum sálfræðinga og í þriðju línu á Landspítala. Kjör sálfræðinga sem starfa í þriðju línu þar sem mesta þjónustuþörfin er eru þau slökustu. Það er sorgleg staðreynd að margir hæfir sálfræðingar hefja starfsferil sinn á opinberum stofnunum, fá mikla þjálfun og reynslu en leita svo í önnur störf innan nokkurra ára. Þannig tapast þau verðmæti sem skapast hafa í uppbyggingu á mannauði geðheilbrigðiskerfisins. Tryggja þarf að launakjör sálfræðinga séu með þeim hætti að góðir sálfræðingar geti starfað til framtíðar í heilbrigðiskerfinu. Þannig skapast mesta arðsemin, besta nýtingin á skattfé almennings auk þess sem gæði og öryggi þjónustunnar eru betur tryggð.


Samningur Sjúkratrygginga Íslands við sálfræðinga

Árið 2020 náðist það langþráða markmið að Alþingi samþykkti niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu í breytingu á lögum um sjúkratryggingar. Það var sýnd veiði en ekki gefin því rammasamningur um þjónustuna uppfyllti ekki þarfir eða væntingar sálfræðinga. Hvorki nægt fjármagn eða uppbygging þess kerfis sem þarf samhliða fylgdi þessari mikilvægu breytingu. Við bindum vonir við að samtal eigi sér stað við Sjúkratryggingar og unnið sé hörðum höndum að því að færa þetta til betri vegar. Samningurinn þarf að ná þeim markmiðum að sálfræðingar sjái sér fært að starfa á honum og hann veiti almenningi raunverulega aukið aðgengi að þjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðinga.


Almenningur tapar

Við viljum að geðheilbrigðiskerfið sé þannig smíðað að almenningur fái bestu mögulegu meðferð, á réttum stað og réttum tíma. Til þess að tryggja það þarf breytingar. Launakjör sálfræðinga þurfa að vera þannig að sálfræðingar geti vaxið og dafnað í sínum störfum til framtíðar. Taxti niðurgreiddrar sálfræðiþjónustu þarf að vera með þeim hætti að hægt sé að reka fyrirtæki sem veita sálfræðiþjónustu með eðlilegum hætti. Við hvetjum stjórnvöld til að fylgja þessum málum eftir. Ráðast þarf í þessa löngu tímabæru og nauðsynlegu fjárfestingu sem mun skila sér til baka í ríkissjóð. Þannig vinnum við að bættri heilsu og hagsmunum fjölskyldna í landinu. Sé það ekki gert, er það almenningur sem tapar því niðurgreidd sálfræðiþjónusta án sálfræðinga sem geta veitt hana er engin sálfræðiþjónusta.

Höfundar starfa sem sálfræðingar.

17 views

Comentários


bottom of page