top of page
Unnur Elsa Reynisdóttir

581 10 09

Unnur Elsa Reynisdóttir

Meistaranemi á öðru ári í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík

Unnur Elsa er meistaranemi á öðru ári í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík, þar sem lögð er sérstök áhersla á hugræna atferlismeðferð (HAM).

Unnur Elsa er meistaranemi á öðru ári í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík, þar sem lögð er sérstök áhersla á hugræna atferlismeðferð (HAM). Helstu áhugasvið hennar eru kvíði og vímuefnavandi.

Unnur lauk BSc námi í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021. Hún hefur starfað á geðsviði Landspítalans, meðal annars á bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma og legudeild geðrofssjúkdóma. Hún hefur einnig tekið þátt í sjálfboðaliðastarfi í skaðaminnkandi þjónustu hjá Rauða Krossinum. Hún hefur sótt ýmis námskeið á vegum Landspítala og Rauða Krossins, líkt og sálrænn stuðningur, sjálfsvígsforvarnir og samþætt skaðaminnkandi meðferð.

Í meistaranáminu hefur Unnur lokið starfsþjálfun á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins þar sem hún vann með sálrænan vanda hjá börnum og tók þátt í að leiða HAM hópmeðferð fyrir kvíða og þunglyndi hjá fullorðnum. Auk þess hefur hún fengið tækifæri til að sitja ýmsar málstofur og námskeið um geðrænan vanda.

Fyrstu tvö viðtöl hjá Unni Elsu er gjaldfráls en hvert viðtal eftir það kostar 10.000 kr.

© 2023| DOMUS MENTIS - Geðheilsustöð |  Þverholti 14 (4. hæð), 105 Reykjavík |   581-1009  |  dmg@dmg.is

bottom of page