top of page
Guðrún Carstensdóttir

581 10 09

Guðrún Carstensdóttir

Sálfræðingur

Guðrún Carstensdóttir sálfræðingur sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum. Einnig sinnir hún íþróttafólki en Guðrún er með meistaragráðu í íþróttasálfræði

Guðrún Carstensdóttir sálfræðingur sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum. Einnig sinnir hún íþróttafólki en Guðrún er með meistaragráðu í íþróttasálfræði.

Guðrún beitir gagnreyndum aðferðum við greiningu og meðferð. Hún styðst fyrst og fremst við hugræna athyglismeðferð (HAM) og nýtir gagnreynd mælitæki til að meta stöðu vandans og árangur meðferðar. Guðrún býður einnig upp á hugræna úrvinnslumeðferð (HÚM) til að vinna með afleiðingar áfalla.

Guðrún lauk námi í klínískri sálfræði 2020 og fékk viðurkenningu frá Embætti Landlæknis sem sálfræðingur sama ár. Guðrún hefur lengst af starfað á Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem sálfræðingur fullorðinna á Heilsugæslunni á Akranesi. Einnig starfaði Guðrún sem sálfræðingur í Geðheilsuteymi Vestur hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins.

Guðrún hefur sótt ýmis námskeið og málstofur í sínu fagi og endurmenntun í tengslum við greiningu og meðferð sálræns vanda. Guðrún sækir reglulega handleiðslu og nýtur ráðgjafar frá sérfræðingum og samstarfsfólki sem starfar á mismunandi sviðum geðheilbrigðisþjónustu.

Guðrún sinnir meðal annars meðferð við
- Lágu sjálfsmati
- Félagskvíða
- Kvíða og kvíðaröskunum
- Streitu og kulnun
- Áfallastreituröskun

© 2023| DOMUS MENTIS - Geðheilsustöð |  Þverholti 14 (4. hæð), 105 Reykjavík |   581-1009  |  dmg@dmg.is

bottom of page