Uppbyggileg réttvísi
Uppbyggileg réttvísi er leið til að bregðast við skaða með ábyrgð, samtali og uppbyggingu að leiðarljósi.
Uppbyggileg réttvísi (e. Restorative Justice) er nálgun sem beinir sjónum að þeim skaða sem hefur orðið, áhrifum hans á fólk og því hvað þarf til að vinna með afleiðingarnar og bæta úr eftir því sem kostur er.
Hún getur nýst þegar afbrot hefur verið framið, en einnig við aðrar aðstæður þar sem athafnir eða hegðun hafa valdið öðrum skaða. Þetta getur átt við hvort sem um er að ræðan sálrænan eða líkamlegan skaða.
Í uppbyggilegri réttvísi er áherslan ekki fyrst og fremst á hvaða lög eða reglur voru brotin, heldur á þann skaða sem varð, hverjir urðu fyrir honum og hver ber ábyrgð.
Athyglinni er beint að fólkinu sem málið snertir:
-
Hver varð fyrir skaða?
-
Hvaða áhrif hafði það sem gerðist?
-
Hverjar eru þarfir þeirra sem málið snertir?
-
Hver ber ábyrgð á skaðanum?
-
Hvað þarf til að bæta úr þeim skaða sem orðið hefur, eftir því sem unnt er?
Uppbyggileg réttvísi felur í sér að gengist er við því sem gerðist, tekist á við skaðann sem af því hlaust og sá sem olli skaðanum studdur til að axla ábyrgð.

Rödd þess sem varð fyrir skaða
Þegar brotið hefur verið á fólki eða því valdið skaða standa oft eftir spurningar sem hefðbundin málsmeðferð eða önnur úrræði veita ekki endilega svör við.
-
Hvers vegna gerðist þetta?
-
Gerir sá sem olli skaðanum sér grein fyrir áhrifunum?
-
Get ég komið því á framfæri hvaða áhrif þetta hafði á mig og líf mitt?
-
Hvað gerist héðan í frá?
Uppbyggileg réttvísi skapar rými fyrir þann sem varð fyrir skaða til að segja frá upplifun sinni, lýsa áhrifum þess sem gerðist og þeim þörfum sem hafa skapast í kjölfarið. Þegar aðstæður leyfa gefst einnig tækifæri til að spyrja spurninga og fá svör sem annars hefðu ef til vill aldrei fengist. Þarfir fólks eru ólíkar. Fyrir suma mikilvægast að fá upplýsingar eða svör. Aðrir vilja að sá sem olli skaðanum skilji afleiðingar gjörða sinna. Enn aðrir vilja fá að tjá sig, öðlast meiri stjórn á eigin aðstæðum eða hafa áhrif á það hvað gerist næst.
Þess vegna er niðurstaða uppbyggilegs ferlis aldrei fyrirfram ákveðin.
Að axla ábyrgð
Uppbyggileg réttvísi snýst ekki síður um ábyrgð þess sem olli skaðanum.
Að axla ábyrgð er meira en að viðurkenna að eitthvað hafi gerst. Það felur í sér að horfast í augu við áhrif eigin gjörða, hlusta á upplifun annarra og taka ábyrgð á þeim skaða sem varð.
Í uppbyggilegu ferli fær sá sem olli skaðanum tækifæri til að öðlast betri skilning á áhrifum gjörða sinna og því hvað gæti þurft til að bæta úr. Þar getur meðal annars falist afsökunarbeiðni, ákveðin aðgerð eða skuldbinding, breyting á hegðun eða annað sem aðilar telja raunhæft og mikilvægt.
Markmiðið er ekki að losa fólk undan ábyrgð heldur að gera ábyrgðina raunverulega og merkingarbæra.
Hvernig fer uppbyggilegt ferli fram?
Uppbyggileg réttvísi getur falið í sér samtal milli þess sem varð fyrir skaða og þess sem olli honum, en slíkur fundur er hvorki sjálfgefinn né markmið í sjálfu sér.
Samskipti geta farið fram með mismunandi hætti eftir aðstæðum og þörfum þátttakenda. Í sumum málum getur verið um beinan fund að ræða en í öðrum geta samskipti farið fram með milligöngu sérfræðings, til dæmis með bréfaskiptum.
Áður en samskipti eiga sér stað fer fram vandaður undirbúningur með hverjum þátttakanda fyrir sig. Metið er hvort uppbyggilegt ferli sé viðeigandi, hverjar þarfir og væntingar þátttakenda eru og hvað þurfi til að tryggja öryggi þeirra sem að ferlinu koma.
Hvert mál er einstakt og er því metið sérstaklega.
Ferlið á að laga sig að þörfum fólksins – ekki fólkið að ferlinu.

Frjáls þátttaka og öryggi
Þátttaka í uppbyggilegri réttvísi byggir á frjálsu og upplýstu samþykki.
Enginn á að þurfa að taka þátt í uppbyggilegu ferli eða hitta þann sem olli honum skaða. Sá sem varð fyrir skaða ákveður sjálfur hvort hann vill taka þátt og með hvaða hætti, innan þess ramma sem metinn er öruggur og viðeigandi.
Á sama hátt þarf sá sem olli skaðanum að vera tilbúinn til að horfast í augu við það sem gerðist, axla ábyrgð og taka þátt í ferlinu af heilindum.
Öryggi þátttakenda er ávallt haft að leiðarljósi.
Undirbúningur og mat á aðstæðum eru því mikilvægur hluti ferlisins og uppbyggilegt samtal fer aðeins fram þegar talið er að forsendur séu fyrir því.

Ekki um fyrirgefningu – og ekki í stað annarra úrræða
Uppbyggileg réttvísi er stundum tengd við sátt eða fyrirgefningu. Hvorugt er skilyrði fyrir uppbyggilegu ferli.
Sá sem varð fyrir skaða þarf ekki að fyrirgefa þeim sem olli honum og markmiðið er ekki að fá fólk til að „setja málið að baki sér“.
Uppbyggileg réttvísi er heldur ekki kraftaverkaúrræði sem hentar öllum málum eða öllum einstaklingum og hún kemur ekki í stað þeirrar þjónustu, meðferðar eða stuðnings sem þegar stendur fólki til boða.
Uppbyggileg réttvísi er viðbót við önnur úrræði, ekki staðgengill þeirra.
Markmiðið er að fjölga þeim leiðum sem standa fólki til boða eftir að skaði hefur orðið.
Uppbyggilegt ferli getur nýst óháð því hversu langt er liðið frá því að atburðurinn átti sér stað. Það sem skiptir máli er ekki eingöngu hvenær eitthvað gerðist heldur hvort uppbyggilegt ferli geti mætt þörfum þeirra sem málið snertir og hvort forsendur séu fyrir öruggri og faglegri þátttöku.
Hverju getur uppbyggileg réttvísi skilað?
Engin ein niðurstaða er markmið allra uppbyggilegra ferla.
Ferlið getur meðal annars skapað tækifæri til að:
-
fá svör við spurningum,
-
koma á framfæri hvaða áhrif brotið olli,
-
öðlast aukinn skilning,
-
axla ábyrgð,
-
bæta úr eftir því sem hægt er,
-
gera samkomulag um samskipti eða önnur atriði til framtíðar,
-
og skapa skýrari leið áfram.
-
Stundum getur ferlið einnig hjálpað fólki að endurbyggja tengsl. Í öðrum tilvikum er það hvorki mögulegt né æskilegt.
Uppbyggileg réttvísi gerir ekki ráð fyrir að ákveðin niðurstaða sé rétt fyrir alla.
Það sem skiptir máli er að þeir sem málið snertir fái raunverulegt rými í ferlinu og að unnið sé með það sem gerðist á öruggan, virðingarfullan og uppbyggilegan hátt.
Það sem gerðist verður ekki tekið til baka. Sumt verður aldrei bætt. En það þýðir ekki að við getum ekki tekist á við afleiðingarnar og fundið leið áfram.
