Verðskrá
Hér má finna upplýsingar um verð á þjónustu Domus Mentis Geðheilsustöðvar, greiðsluþátttöku og afbókunarskilmála.
Viðtöl og greiningar
Þjónusta Verð
Viðtal hjá sérfræðingi með innan við 5 ára starfsreynslu 25.000 kr.
Viðtal hjá sérfræðingi í klínískri sálfræði eða sérfræðingi með 5 ára starfsreynslu eða meira 27.000 kr.
Greiningarviðtal, 90 mínútur 37.500–40.500 kr.
Verð greiningarviðtals miðast við eitt og hálft almennt viðtalsgjald.
Viðtal afbókað of seint eða ekki mætti í viðtal 14.000 kr.
Önnur þjónusta
Þjónusta Verð
Faglegt símtal við sérfræðing, allt að 15 mínútur 7.000 kr.
Faglegt símtal, lengra en 15 mínútur Almennt viðtalsgjald
Stutt vottorð 7.000 kr.
Skýrslugerð og ítarleg vottorð Samkvæmt tímagjaldi
Skýrslugerð og ítarleg vottorð eru reiknuð samkvæmt þeim tíma sem fer í vinnuna og gildandi tímagjaldi viðkomandi sérfræðings.
Fræðsla, fyrirlestrar og sérhæfð verkefni
Domus Mentis býður fyrirtækjum, stofnunum og öðrum hópum upp á fræðslu, fyrirlestra, vinnustofur og sérhæfða ráðgjöf.
Verð fer eftir umfangi og eðli verkefnisins og er ákveðið í samráði við verkkaupa. Hafið samband við okkur til að fá nánari upplýsingar eða tilboð.
Greiðsluþátttaka og niðurgreiðslur
Stéttarfélög og aðrir styrktaraðilar
Mörg stéttarfélög veita félagsmönnum styrki vegna sálfræðiþjónustu og annarrar heilbrigðisþjónustu. Við hvetjum skjólstæðinga til að kynna sér réttindi sín hjá sínu stéttarfélagi eða öðrum styrktaraðilum.
Þjónusta samkvæmt samningum við stofnanir
Domus Mentis veitir einnig þjónustu samkvæmt samningum við ýmsar stofnanir og samstarfsaðila, almennt gildir að ef greiðsluþátttaka verkkaupa er lægri en gildandi gjaldskrá Domus Mentis greiðir skjólstæðingur mismuninn, að því marki sem skilmálar viðkomandi samnings heimila.
Rammasamningar
Þegar þjónusta er veitt samkvæmt rammasamningi er innheimt komugjald 1.000 kr. fyrir viðtal.
Afbókanir og forföll
Afbóka þarf bókaðan tíma með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara. Afbókanir fyrir tíma á mánudegi þurfa að berast fyrir kl. 14 á föstudeginum á undan.
Ef tími er afbókaður með skemmri fyrirvara eða ekki er mætt í bókaðan tíma er innheimt 14.000 kr. gjald.
