top of page
Myn f wix.png

E-STAIR – Markviss meðferð við afleiðingum flókinna áfalla

Tveggja daga vinnustofa með Dr. Christie Jackson, forseta STAIR Institute

Domus Mentis Geðheilsustöð býður upp á tveggja daga hagnýta vinnustofu í E-STAIR (Enhanced Skills Training in Affective and Interpersonal Regulation), í samstarfi við STAIR Institute.

E-STAIR er heildstæð, einstaklingsmiðuð sálfræðileg meðferð sem byggir á gagnreyndum aðferðum og er sérstaklega þróuð fyrir einstaklinga sem hafa orðið fyrir flóknum eða langvarandi áföllum. Meðferðin tekur meðal annars á erfiðleikum í tilfinningastjórnun, sjálfsmynd og mannlegum samskiptum, auk úrvinnslu áfallaminninga.

Á vinnustofunni verður lögð áhersla á hagnýta þjálfun og tengingu fræðilegrar þekkingar við klíníska vinnu. Þátttakendur kynnast fjórum meginþáttum E-STAIR:

  • Tilfinningastjórnun

  • Jákvæðri sjálfsmynd

  • Færni í mannlegum samskiptum

  • Frásagnarmeðferð (Narrative Therapy)

Leiðbeinandi: Dr. Christie Jackson, klínískur sálfræðingur í New York og forseti STAIR Institute, með víðtæka reynslu af rannsóknum, kennslu og handleiðslu í áfallamiðaðri meðferð.

Markhópur: Sálfræðingar og félagsráðgjafar.

Dagsetningar: 28.–29. janúar 2027

Tími: Kl. 8:30–16:00 báða daga

Staðsetning: Háteigskirkja, Reykjavík

Þátttökugjald: 135.000 kr.

Skráning fer fram rafrænt og reikningur verður sendur á skráðan greiðanda. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

​

​

​

​

Skráningar- og afbókunarskilmálar

Skráning á E-STAIR vinnustofuna 28.–29. janúar 2027 er bindandi. Þátttökugjald er 135.000 kr. og reikningur verður sendur á skráðan greiðanda.

  • Afbókun fyrir 2. janúar 2027 er án kostnaðar.

  • Afbókun 2.–14. janúar 2027: 50% þátttökugjalds.

  • Afbókun frá og með 15. janúar 2027: fullt þátttökugjald.

  • Heimilt er að framselja skráningu til annars þátttakanda án aukakostnaðar, í samráði við Domus Mentis.

Afbókanir skulu berast skriflega á dmg@dmg.is.

Ef Domus Mentis fellir námskeiðið niður verður þátttökugjald endurgreitt að fullu.

© 2023| DOMUS MENTIS - Geðheilsustöð |  Þverholti 14 (4. hæð), 105 Reykjavík |   581-1009  |  dmg@dmg.is

bottom of page