
581 10 09
Helga Margrét Rúnarsdóttir
Sálfræðingur
Helga Margrét sinnir sálfræðimeðferð fullorðinna og styðst fyrst og fremst við hugræna atferlismeðferð (HAM) og aðrar gagnreyndar aðferðir.
Sálfræðimeðferð
Helga Margrét sinnir sálfræðimeðferð fullorðinna og styðst fyrst og fremst við hugræna atferlismeðferð (HAM) og aðrar gagnreyndar aðferðir. Hún leggur áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun og sinnir meðal annars meðferð vegna kvíða, þunglyndis, lágs sjálfsmats, samskiptavanda, sorgar og áfallatengds vanda.
Menntun og starfsreynsla
Helga Margrét lauk BSc námi í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2023 og meistaranámi í klínískri sálfræði frá sama skóla vorið 2026. Í náminu öðlaðist hún fjölbreytta klíníska reynslu undir handleiðslu reyndra sálfræðinga, meðal annars hjá Sálfræðiþjónustu Háskólans í Reykjavík og DAM-teymi Landspítala. Hún leiddi einnig HAM-námskeið við streitu á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Áður starfaði Helga Margrét sem ráðgjafi á legudeild geðrofssjúkdóma á Landspítala, þar sem hún öðlaðist reynslu af starfi með einstaklingum sem glíma við alvarlegan og fjölþættan geðrænan vanda.
Helga Margrét hefur jafnframt sótt frekari námskeið og vinnustofur í Acceptance and Commitment Therapy (ACT), meðal annars með áherslu á kvíða, þunglyndi og áfallatengdan vanda. Auk þess hefur hún sótt fjölbreytt námskeið á vegum Landspítala sem tengjast geðheilbrigði og klínísku starfi.
Handleiðsla
Helga Margrét sækir reglulega handleiðslu og nýtur ráðgjafar frá sérfræðingum og samstarfsfólki eftir þörfum.
