
581 10 09
Valgerður Ólafsdóttir
Sálfræðingur
Valgerður sinnir greiningu og meðferð barna, unglinga og fullorðinna og veitir foreldrum uppeldisráðgjöf og stuðning.
Hún hefur sérstakan áhuga á forvörnum, sjálfsstyrkingu og að efla fólk í að takast á við áskoranir lífsins. Í starfi sínu notast hún við gagnreyndar meðferðarleiðir á borð við hugræna atferlismeðferð (HAM), aðferðir díalektískrar atferlismeðferðar (DAM) og acceptance commitment therapy (ACT).
Valgerður hefur áralanga reynslu af sálfræðilegri vinnu með börnum, unglingum, foreldrum og kennurum og af greiningu á tilfinningavanda, hegðunarvanda og þroskafrávikum barna. Hún hefur starfað lengi sem skólasálfræðingur auk þess sem hún hefur kennt í framhaldsskólum, sinnt stundakennslu við Háskóla Ísland og verið leiðbeinandi sálfræðinema í starfsþjálfun. Valgerður er einnig rithöfundur og þýðandi. Hún hefur sent frá sér skáldverk, kennslubók í geðrækt og þýðingar á sálfræðilegum sjálfshjálparbókum.
Valgerður lauk embættisprófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2011 og hlaut sama ár starfsleyfi frá Landlæknisembættinu til að starfa sem sálfræðingur auk þess að ljúka kennsluréttindanámi. Hún lauk tveggja ára sérnámi í hugrænni atferlismeðferð fyrir sálfræðinga og geðlækna frá Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Oxford Cognitive Center árið 2021. Valgerður sinnir reglubundið símenntun og sækir ráðstefnur til að bæta þekkingu og auka færni sína í starfi.
