top of page

Þjónusta Domus Mentis

Hjá Domus Mentis bjóðum við fjölbreytta þjónustu fyrir einstaklinga, börn, ungmenni, fjölskyldur, fyrirtæki og stofnanir.

​

Þverfaglegur hópur sérfræðinga veitir greiningu, meðferð, ráðgjöf og handleiðslu. Við leggjum áherslu á fagmennsku, gagnreyndar aðferðir og gott samstarf, svo hver og einn geti fundið þjónustu við hæfi.

Einstaklingar

Við bjóðum fullorðnum einstaklingum fjölbreytta þjónustu, meðal annars sálfræðimeðferð, geðlæknisþjónustu, áfallameðferð, greiningar og ráðgjöf.

​

Til okkar leitar fólk vegna margvíslegra áskorana, svo sem kvíða, depurðar, áfalla, streitu og erfiðleika í samskiptum. Einnig veitum við stuðning við lífsbreytingar, persónulegan þroska og aukna vellíðan.

​

Þjónustan tekur mið af þörfum og aðstæðum hvers og eins.

Börn, ungmenni og fjölskyldur

Domus Mentis býður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Þjónustan felur meðal annars í sér sálfræðimeðferð, sálfræðilegar greiningar, fjölskyldumeðferð, foreldraráðgjöf og stuðning við börn og ungmenni sem glíma við tilfinningalegan, félagslegan eða hegðunarlegan vanda.

Fyrirtæki og stofnanir

Domus Mentis býður fyrirtækjum og stofnunum fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að efla geðheilsu starfsfólks, bæta samskipti og stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi.

​

Þjónustan felur meðal annars í sér sálfræðiþjónustu fyrir starfsfólk, ráðgjöf, handleiðslu, fræðslu og EKKÓ-þjónustu vegna eineltis, kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni og ofbeldis á vinnustöðum.

Uppbyggileg réttvísi 

Uppbyggileg réttvísi er nálgun sem byggir á samtali, ábyrgð og skilningi á áhrifum erfiðra atvika og samskipta. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem þeir sem málið varðar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri, rætt afleiðingar þess sem gerðist og leitað leiða til úrbóta.

​

Domus Mentis býður einnig upp á sáttamiðlun, sem er sérstök aðferð til að vinna úr ágreiningi og finna sameiginlegar lausnir.

​

© 2023| DOMUS MENTIS - Geðheilsustöð |  Þverholti 14 (4. hæð), 105 Reykjavík |   581-1009  |  dmg@dmg.is

bottom of page