
Fyrirtæki og stofnanir
Vellíðan starfsfólks, góð samskipti og heilbrigt starfsumhverfi eru mikilvægir þættir í öflugu og farsælu starfi fyrirtækja og stofnana.
Domus Mentis býður fyrirtækjum, sveitarfélögum, félagasamtökum og stofnunum fjölbreytta sérfræðiþjónustu á sviði geðheilsu, ráðgjafar og fræðslu. Þverfaglegur hópur sérfræðinga okkar veitir meðal annars sálfræðiþjónustu, stuðning við starfsfólk, ráðgjöf vegna krefjandi aðstæðna og sérhæfða þjónustu fyrir opinbera aðila. Einnig býður DMG upp á EKKÓ-þjónustu, sem snýr að forvörnum og viðbrögðum við einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Við erum með þjónustu- og samstarfssamninga við fjölbreytt fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Áhersla er lögð á faglegt og sveigjanlegt samstarf þar sem þjónustan er sniðin að þörfum hvers vinnustaðar eða stofnunar.
Sálfræðiþjónusta og stuðningur við starfsfólk
Góð líðan starfsfólks er mikilvægur þáttur í heilbrigðu starfsumhverfi. Með því að leggja áherslu á forvarnir, snemmtækan stuðning og aðgengi að faglegri ráðgjöf geta fyrirtæki og stofnanir stuðlað að vellíðan starfsfólks og brugðist við erfiðleikum áður en þeir verða umfangsmeiri.
Domus Mentis veitir starfsfólki fyrirtækja og stofnana aðgang að fjölbreyttri sérfræðiþjónustu, meðal annars sálfræðimeðferð, ráðgjöf og stuðningi. Þjónustan getur meðal annars nýst vegna:
-
Streitu, langvarandi álags og kulnunar.
-
Kvíða, þunglyndis og annarra geðrænna erfiðleika.
-
Áfalla og erfiðrar lífsreynslu.
-
Samskiptaerfiðleika og ágreinings á vinnustað.
-
Sorgar, missis og krefjandi breytinga í einkalífi.
-
Erfiðleika við að samræma vinnu, fjölskyldulíf og aðrar skyldur.
Þjónustan er veitt af reyndum sérfræðingum og tekur mið af þörfum hvers einstaklings. Trúnaður og fagleg vinnubrögð eru ávallt í fyrirrúmi, óháð því hvort einstaklingurinn greiðir sjálfur fyrir þjónustuna eða hún er veitt samkvæmt samningi við vinnuveitanda.


Þjónustu- og samstarfssamningar
Domus Mentis er með þjónustu- og samstarfssamninga við fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök um aðgang að fjölbreyttri sérfræðiþjónustu. Samningarnir eru sniðnir að þörfum hvers samstarfsaðila og geta verið mikilvægur þáttur í forvörnum og stuðningi við starfsfólk.
Samstarfið getur meðal annars falið í sér:
-
Greiðari aðgang að þjónustu: Forgang að tímabókun og snemmtækan stuðning þegar þörf krefur.
-
Greiðsluþátttöku: Fyrirtæki eða stofnun greiðir fyrir tiltekinn fjölda viðtala eða tekur þátt í kostnaði samkvæmt samkomulagi.
-
Fjölbreytta sérfræðiþjónustu: Aðgang að sálfræðingum og öðrum sérfræðingum Domus Mentis.
-
Ráðgjöf til stjórnenda: Faglegan stuðning vegna erfiðra starfsmannamála, samskipta, ágreinings, álags og annarra krefjandi aðstæðna á vinnustað.
-
Fræðslu og forvarnir: Fyrirlestra, námskeið og ráðgjöf sem tekur mið af þörfum vinnustaðarins.
-
Sveigjanlegt samstarf: Fyrirkomulag sem tekur mið af stærð, starfsemi og aðstæðum hvers samstarfsaðila.
Markmiðið er að auðvelda aðgengi að faglegri aðstoð, styðja við vellíðan starfsfólks og stuðla að því að brugðist sé tímanlega við áskorunum.
Áhugasömum fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum er velkomið að hafa samband til að ræða möguleika á samstarfi.
EKKÓ – einelti, kynferðisleg áreitni og ofbeldi á vinnustöðum
Domus Mentis býður fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum sérhæfða EKKÓ-þjónustu sem snýr að forvörnum og viðbrögðum við einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Þjónustan felur í sér faglega ráðgjöf og stuðning við stjórnendur og vinnustaði þegar upp koma viðkvæm eða flókin mál. Einnig er lögð áhersla á forvarnir, fræðslu og að stuðla að skýrum og ábyrgum viðbrögðum við tilkynningum og ágreiningi.
Markmiðið er að styðja vinnustaði við að skapa öruggt og heilbrigt starfsumhverfi þar sem tekið er á erfiðum málum af fagmennsku og virðingu fyrir öllum hlutaðeigandi.

Þjónusta við sveitarfélög og barnaverndarþjónustur
Domus Mentis veitir sveitarfélögum, félagsþjónustum og barnaverndarþjónustum sérhæfða ráðgjöf og stuðning í málum sem kalla á faglega þekkingu og reynslu.
Félagsráðgjafar og aðrir sérfræðingar stöðvarinnar taka að sér fjölbreytt verkefni í samstarfi við opinbera aðila. Þjónustan getur meðal annars falist í:
-
Ráðgjöf og stuðningi við börn, foreldra og fjölskyldur.
-
Sérhæfð mats- og ráðgjafarverkefni fyrir félagsþjónustur og barnaverndarþjónustur.
-
Fjölskylduráðgjöf og stuðningi við foreldrasamstarf.
-
Sálfræðiþjónustu og meðferð eftir þörfum.
-
Faglegri ráðgjöf og samstarfi við starfsfólk félags- og barnaverndarþjónustu.
-
Handleiðsla starfsfólks
Verkefni eru skipulögð í samráði við viðkomandi þjónustu og taka mið af eðli máls, þörfum þeirra sem þjónustuna þiggja og faglegum kröfum.


Fræðsla, námskeið og vinnustofur
Domus Mentis býður fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum upp á fræðslu, fyrirlestra og vinnustofur sem miða að því að efla þekkingu, styrkja samskipti og stuðla að vellíðan og heilbrigðu starfsumhverfi.
Fræðslan er sniðin að þörfum hvers vinnustaðar eða hóps og getur meðal annars fjallað um:
-
Geðheilsu, streitu, álag og forvarnir gegn kulnun.
-
Samskipti, samstarf og lausn ágreinings.
-
Sálrænt öryggi og vellíðan á vinnustað.
-
Áföll, áfallamiðaða nálgun og stuðning í kjölfar erfiðra atburða.
-
Stjórnunaráskoranir og stuðning við starfsfólk í vanda.
-
Sérhæfð viðfangsefni fyrir fagfólk á sviði geðheilsu, félagsþjónustu og velferðarmála.
Við leggjum áherslu á gagnreynda þekkingu og hagnýta nálgun sem þátttakendur geta nýtt í starfi.
Fræðslan getur verið í formi stuttra fyrirlestra, lengri námskeiða eða vinnustofa, eftir umfangi og markmiðum hvers verkefnis.
Hafðu samband um samstarf
Domus Mentis býður fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum sveigjanlegt samstarf, hvort sem um er að ræða þjónustusamninga, ráðgjöf til stjórnenda, fræðslu eða sérhæfð verkefni.
Við ræðum gjarnan þarfir og áherslur hvers samstarfsaðila og finnum í sameiningu það fyrirkomulag sem hentar best.
