
581 10 09
Aníta Ragnarsdóttir
Félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur
Aníta sinnir einstaklings-, para- og fjölskyldumeðferð með áherslu á að bæta líðan, efla samskipti og auka skilning skjólstæðinga á eigin aðstæðum.
Aníta er með MA-gráðu í félagsráðgjöf og hefur lokið framhaldsnámi í fjölskyldumeðferð hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Einnig hefur hún lokið þjálfun í CPC-CBT, sem er fjölskyldumiðuð hugræn atferlismeðferð.
Aníta starfar sem sérfræðingur í Barnahúsi samhliða störfum hjá Domus Mentis Geðheilsustöð. Í Barnahúsi felst starfið meðal annars í áfallameðferð fyrir börn og ungmenni með áfallastreituröskun, auk fjölskyldumiðaðrar hugrænnar atferlismeðferðar fyrir fjölskyldur þar sem börn hafa búið við líkamlegt og/eða andlegt ofbeldi.
Hún hefur jafnframt víðtæka reynslu af sambandsráðgjöf. Í slíkri meðferð fær parið öruggt rými til að ræða saman, hlusta og vinna að því að endurheimta tengsl sín. Áhersla er lögð á að greina mynstur sem geta hamlað nánd og trausti, takast á við ágreining á uppbyggilegan hátt og finna lausnir sem henta báðum aðilum. Unnið er út frá tengslamiðaðri frásagnarmeðferð og hugrænni atferlismeðferð með það að markmiði að efla samkennd, dýpka skilning og styðja við varanlegar breytingar.
Hægt er að bóka viðtal hjá Anítu með því að senda tölvupóst á dmg@dmg.is eða hringja í síma 581-1009.
