
581-1009
Edda Sigfúsdóttir
Sálfræðingur
Edda Sigfúsdóttir sálfræðingur sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum. Edda sérhæfir sig í hugrænni atferlismeðferð og atferlisvirkjun. Hún sinnir m.a. þunglyndismeðferð, meðferð við lágu sjálfsmati, meðferð við kvíðaröskunum, streitu og kulnun, sorg og geðhvörfum (bipolar).
Hugræn atferlismeðferð
Edda beitir gagnreyndum aðferðum við greiningu og meðferð og styðst fyrst og fremst við hugræna atferlismeðferð (HAM). Hún nýtir gagnreynd mælitæki til að mæla árangur meðferðar.
Menntun og fyrri störf
Samhliða starfinu á Domus Mentis starfar Edda við rannsókn í Háskóla Íslands sem meðferðaraðili og við handleiðslu nema í klínískri sálfræði.
Áður hefur Edda starfað sem sálfræðingur á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis og í geðhvarfateymi (bipolarteymi) Landspítalans.
Edda lauk Msc í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2020 og BS í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2014.
Í náminu hlaut hún fjölbreytta klíníska reynslu undir handleiðslu reyndra sálfræðinga frá þremur ólíkum stöðum. Fyrst í sálfræðiþjónustu Háskólans í Reykjavík þar sem hún sinnti m.a. meðferðum á félagskvíða, frammistöðukvíða, lágu sjálfsmati, þunglyndi og almennri kvíðaröskun. Því næst á Þjónustumiðstöð Laugardals- og Háaleitis þar sem hún öðlaðist reynslu í greiningarvinnu á geðröskunum barna. Að lokum á göngudeild Landspítala þar sem hún var aðallega í geðhvarfateymi og sinnti greiningum og meðferðum við ýmsum geðrænum vanda.
Hún hefur öðlast þjálfun og reynslu í notkun hugrænnar atferlismeðferðar. Hún hefur einnig sótt ýmis námskeið og fengið tækifæri til að sitja málstofur og vinnustofur framúrskarandi fræðimanna um greiningu og meðferð sálræns vanda. Edda hefur sömuleiðis lokið bóklegum hluta náms sem veitir sérfræðivottun í atferlisgreiningu (Board Certified Behaviour Analyst Examination).
Handleiðsla
Edda sækir reglulega handleiðslu og nýtur ráðgjafar frá sérfræðingum og samstarfsfólki sem starfar á mismunandi sviðum geðheilbrigðisþjónustu.

