top of page
Silja Runólfsdóttir

581-1009

Silja Runólfsdóttir

Sálfræðingur

Silja sinnir greiningu og meðferð á ungmennum og fullorðnum. Sinnir hún meðal annars meðferð við kvíða, þunglyndi og lágu sjálfsmati.

Menntun
Silja lauk BSc prófi í sálfræði við Háskólann í Reykjavík árið 2013. Fór hún í framhaldinu í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands og lauk þaðan MA gráðu í júní 2017. Silja útskrifaðist með MSc gráðu í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík vorið 2019.
Silja öðlaðist fjölbreytta klíníska reynslu undir handleiðslu reyndra sálfræðinga í starfsnámi sínu en starfsnám sótti hún á þrjá staði, skólaskrifstofu Mosfellsbæjar, Domus Mentis geðheilsustöð og á taugasviði Reykjalundar. Í gegnum nám og starf hefur Silja fengið tækifæri til að sitja málstofur og ýmis námskeið í umsjón framúrskarandi fræðimanna á sviði greininga og meðferðar sálræns vanda.
Silja starfar fyrir Domus Mentis bæði á Selfossi sem og í Þverholti 14. Býður hún upp á staðviðtöl og fjarviðtöl.

Handleiðsla
Silja sækir reglulega handleiðslu.

Hugræn atferlismeðferð
Í meðferð og við greiningu beitir Silja gagnreyndum aðferðum og styðst hún fyrst og fremst við hugræna atferlismeðferð (HAM) og hugræna úrvinnslumeðferð (HÚM) ef vinna á með afleiðingar áfalla. Þá nýtir hún gagnreynd mælitæki til að mæla árangur meðferðar.

© 2023| DOMUS MENTIS - Geðheilsustöð |  Þverholti 14 (4. hæð), 105 Reykjavík |   581-1009  |  dmg@dmg.is

Tímabundin truflun á tölvupósti

Vegna tæknilegra truflana hjá þjónustuaðila okkar er tölvupóstur Domus Mentis Geðheilsustöðvar tímabundið óvirkur.

Á meðan er hægt að hafa samband við okkur í gegnum nýtt, tímabundið netfang:

mottaka@domusmentis.onmicrosoft.com

Einnig er hægt að hafa samband við móttöku í síma 581-1009 eða senda almenna fyrirspurn í gegnum Facebook Messenger.

Við biðjum þau sem hafa sent okkur tölvupóst undanfarna daga og ekki fengið svar að hafa samband aftur, þar sem ekki er tryggt að öll erindi hafi borist.

Vinsamlegast sendið ekki viðkvæmar persónu- eða heilsufarsupplýsingar í tölvupósti eða í gegnum Messenger.

Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum.

bottom of page