top of page
Soffía Ellertsdóttir

581-10 09

Soffía Ellertsdóttir

Fjölskyldufræðingur

Sem fjölskyldufræðingur sinnir Soffía einstaklingum, pörum og fjölskyldum sem eiga í vanda.

Viðfangsefni fjölskyldufræðinga geta meðal annars verið:

• Samskiptavandi – foreldra og barna/unglinga – systkina – tengdaforeldra og tengdabarna
• Óöryggi og ólíkar áherslur foreldra í uppeldi
• Flókin samskipti samsettra fjölskyldna – mín, þín og okkar börn
•Erfiðar aðstæður í tengslum við aðskilnað

Ráðgjöf við fósturfjölskyldur, fósturbörn og foreldra þeirra
Soffía hefur um árabil starfað sem leiðbeinandi á námskeiðum sem haldin eru á vegum Barnaverndarstofu og eru ætluð verðandi fósturforeldrum og þeim sem eru með börn innan fjölskyldu í fóstri. Hún hefur veitt fósturfjölskyldum, fósturbörnum og foreldrum fósturbarna handleiðslu og ráðgjöf.

Menntun
• Endurmenntun Háskóla Íslands - Fjölskyldumeðferð
• Háskóli Íslands - Uppeldis og menntunarfræði -
Viðbótardiplóma á meistarastigi. Kjörsvið: Heilbrigði og velferð
• Háskóli Íslands - BS Sálfræði ​

Meðal námskeiða sem Soffía hefur sótt má nefna:
• Tengslavandi hjá leik- og grunnskólabörnum – gagnlegar áherslur og aðferðir sem lofa góðu
• Emotionally Focused Therapy Training
• Vinnustofa með Dr. Önnu Ingeborg Pétursdóttur:
Teaching communication with techniques and concepts from Behavior analysis (Kennsla boðskipta með aðferðum og hugtakakerfi atferlisgreiningar).
• Foster Pride námskeið fyrir leiðbeinendur - Dröbak, Noregi

​Að auki hefur Soffía sótt fjölda ráðstefna og málþinga bæði innanlands og erlendis er varða málefni barna sem eiga í vanda.

bottom of page